Refund policy

Skilaréttur


SKIPTI 

 

Við vonum auðvitað að þú sért fullkomlega sátt/ur við vörurnar sem þú færð sendar frá museverslun.is. Ef varan hins vegar passar þér ekki eða hentar þér ekki hefur þú 14 daga skiptirétt frá útgáfudegi reiknings fyrir vörur sem keyptar eru í verslun Muse og fyrir vörur sem keyptar eru í netverslun museverslun.is.

 

Skiptiréttur gildir að því tilskildu að varan sé ónotuð, óþvegin og í upprunalegu ástandi með verðmerkingunum á. GS Verslanir ehf áskilur sér rétt til þess að neita að taka við vöru tilbaka séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt.

 

Kvittunin þarf að fylgja með þegar vöru er skipt.

 

Ef varan er keypt á vefsíðunni okkar www.museverslun.is er hægt að skipta vörunni í aðra vöru fyrir sömu upphæð og vörunnar sem skilað var. Ef varan er keypt í verslun okkar í Kringlunni hefur viðskiptavinur einnig það val að fá inneignarnótu að verðmæti vörunnar sem skilað er.

 

Útsöluvörur sem keyptar eru á netverslun museverslun.is eða í verslun okkar Kringlunni fæst hvorki skilað né skipt.

 

Þegar skipta á vöru sem keypt er innan við 14 daga fyrir upphaf útsölu á að miða við verð vörunnar á útsölunni en ekki upphaflegt verð. Þetta á þó ekki við um þegar vara er keypt í desember en í þeim tilfellum hefur viðskiptavinur frest til 31.desember til þess að skipta vörunni á fullu verði í aðra vöru eða inneignarnótu. 

 

 

Ef skipta á vöru með póstsendingu skal hún send á eftir farandi heimilisfang:

      GS Verslanir ehf / Muse verslun

      Kringlan 1-3

      103 Reykjavík

 

Ef vöru er skipt í gegnum póstsendingu ber kaupandi allan kostnað af flutningsgjöldum (kvittun fyrir vörukaupum þarf í öllum tilvikum að fylgja með).

 

Ekki er hægt að skipta vörum á lokaútsölu nema varan sé gölluð eða þú hefur fengið senda ranga vöru.

 

Ekki er hægt að skila eða fá gjafamiða á nærföt, sundföt og skartgripi.

 

Ef pakkinn sem þú sendir til okkar tilbaka skilar sér ekki, munum við biðja þig um að sýna fram á að þú hafir sent hann með því að sýna okkur kvittun frá póstinum. Ef þú getur ekki framvísað kvittuninni áskiljum við okkur rétt til þess að neita að skipta vörunni.

 

 

 

ENDURGREIÐSLA

 

Ef varan er keypt í gegnum netið getur kaupandi hætt við kaupin í 14 daga frá afhendingu vörunnar og fengið endurgreitt.

 

Skilaréttur gildir að því tilskildu að varan sé ónotuð, óþvegin og í upprunalegu ástandi með verðmerkingunum á. GS Verslanir ehf áskilur sér rétt til þess að neita að taka við vöru tilbaka séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt.

 

Þegar þú sendir vöruna tilbaka haltu þá upp á kvittunina fyrir sendingunni sem sönnun fyrir því að þú hafir sent hana af stað.

 

Ef varan sem þú skilar mætir þeim skilyrðum sem þarf að uppfylla til þess að fá endurgreiðslu munt þú fá staðfestingu í tölvupósti á því að þú eigir rétt á endurgreiðslu.

 

Það getur tekið allt að 2-4 daga að fá endurgreitt frá deginum sem þú færð staðfestingartölvupóstinn.

 

Við endurgreiðum yfirleitt á sama hátt og þú greiddir fyrir pöntunina upphaflega.

 

Þegar skila á vöru sem keypt er innan við 14 daga fyrir upphaf útsölu á að miða við verð vörunnar á útsölunni en ekki upphaflegt verð. Þetta á þó ekki við um þegar vara er keypt í desember en í þeim tilfellum hefur viðskiptavinur frest til 31.desember til þess að skila vörunni á fullu verði.

 

Ekki er hægt að skila vörum á útsölu nema að varan sé gölluð eða ef röng vara hefur verið send. 

 

Galli: 

Ef neytandi kaupir gallaða(r) vöru(r) í vefverslun Muse er boðið upp á viðgerð, nýja(r) vöru(r), afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Það fer eftir atvikum og eðli gallans hvaða leið er valin hverju sinni. Um rétt neytanda, þ.e.a.s. einstaklingar sem versla í vefverslun Muse, eigi í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003. Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun Muse í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.